Friday, November 24, 2006

Held það sé nú alveg kominn tími í að rita nokkrar línur..... Skil ekki hvað það hefur tekið mig langann tíma. Kannski bara leti!!
Það er nú mikið búið að vera um að vera hér frá því í síðustu færslu. Búin að hitta marga sem hafa komið til Lundúna, m.a. Hrönn og Binna, Frikka og Sjönu og Sverri og Rannveigu. Við höfum því gert marg skemmtilegt síðustu vikur svo sem; Portobello, Camden, Borough Market og svo að sjálfsögðu í Covent og Oxford. Síðustu vikur hafa því verið mikið út að borða og ótrúlegt en satt var okkur báðum farið að langa í eitthvað létt. Þessi vika hefur því verið mjög einhæf hvað kvöldmat varðar, kerloggs og beyglur.
Annars hafa virku dagarnir bara sinn vanagang = vinna og skóli. Þar sem er að styttast í skólalok hjá mér er mikið að gera og er ég að klára ýmis verkefni.
Það er enþá frekar hlýtt hérna hjá okkur núna, reyndar hefur veðrið verið einsog jójó ýmist heitt eða ískalt og svo rigning þess á milli.
Aldrei að vita nema ég bloggi eitthvað eftir helgi, stefnan er að kíkja í bæinn og fara í smá jólastúss......

Friday, November 03, 2006

Greinilegt að veturinn er að koma í heimsókn til okkar.... brrrrr. Orðið alveg ískalt. Þurfum að fara að þurrka rykið af húfum, treflum og vettlingum. Aldrei að vita nema ég kaupi mér bara 1 stk úlpu, meika varla veturinn í þunnum jakka enn eina ferðina.

Monday, October 30, 2006

Jæja, þá erum við komin aftur út og gekk ferðalagið bara vel. Það er nú aðeins hlýrra hér en heima, um 16 sitga hiti.
Annars var alveg æðislegt að koma heim og hitta alla, ótrúlegt alveg hvað tíminn líður hratt. En hægt er að segja að vikan hafi verið vel skipulögð og gerðum við margt skemmtilegt. Alltaf gaman að hitta fjölskyldu og vini. Við vorum mjög dugleg að kíkja í bakaríið; kjallarabolla með paprikusmurosti og kókómjólk klikkar sko ekki. Fórum svo á Mýrina, mæli sko alveg með henni!!

Wednesday, October 18, 2006

Það er nóg að gera hjá okkur um helgar og eru þær hver annarri skemmtilegri..... Um síðustu helgi hittum við Hrönn og Brynjólf. Borðuðum með þeim á fimmtudagskvöldinu á "prinsessu Díönu" staðnum, mjög góður ítalskur matur. Fórum svo líka með þeim í brunch á sunnudeginum og eftir það sýndum við þeim nýju íbúðina okkar. Regína og Bjössi komu svo til okkar á laugardeginum frá Cambridge, mjög ljúft að hafa þau svona nálægt :) Það var mjög næs spjallað og hlegið..... Borðaður ostur með mjög svo GÓÐRI lykt, allavega fannst mér lyktin algjört æði!!!! Elska osta með sterkri lykt mmmm.....
Alveg ótrúlegt hvað mér finnst vikan vera fljót að líða... Ætli það sé ekki bara einum færri virkir dagar hér í Bretlandi, er alveg viss um það. Strax komin miðvikudagur, fer að styttast í að við kíkjum til landsins góða.

Thursday, October 12, 2006

tilviljun, tilviljun og tilviljun....
Í strætó í morgun tók ég eftir einni stelpu, hún var svona frekar áberandi klædd; í sebrajakka og tjullpilsi. Á leiðinni heim núna áðan, haldiði ekki að sama stelpan hafi verið í strætó!!!! Mér finnst það allavega frekar mikil tilviljun í svona stórri borg og miðað við hvað strætó gengur oft hérna :)

Tuesday, October 10, 2006

Eins og sést kannski á skrifum hér, þá er skólinn hjá mér byrjaður. Það má segja að hann hafi byrjað alveg á fullu og lítur út fyrir að þessi önn verði nokkuð fjörug.
En þessi helgi var alveg gífurlega skemmtileg, þar sem mútta, Eva og Ágúst Máni kíktu til okkar í heimsókn. Þar var þetta vanalega þrætt; matarmarkaðurinn, oxford, covent ofl..... Á laugardaginn vorum við Kristinn að leika við Ágúst Mána og var dagurinn hinn skemmtilegasti. Kíktum aðeins á róló, skoðuðum litlu gosbrunnana og formúlubílinn sem stilltur var upp fyrir utan Hilton hótelið hérna rétt hjá, sló hann alveg í gegn hjá strákunum.

Thursday, September 28, 2006

Gleymdi að segja frá einu atviki í blogginu hér fyrir neðan. Þetta er alveg ótrúlegt með mig... en haldiði að það hafi ekki dúfa náð að skíta á mig á Oxfordstræti um helgina. Ég fann alltíeinu eitthvað blautt á sokknum mínum, leit niður og sá lítinn hvítann blett. Ég leit því strax upp, í von um að það væri húsþak eða eitthvað fyrir ofan. En nei nei, það var ekkert fyrir ofan mig og heiðskýr himinn.. Ég geri því ráð fyrir að þetta hafi verið dúfnaskítur. Ég held að dúfurnar hérna í London séu að leggja mig í eineilti, þar sem þetta er annað skiptið í stuttan tíma sem ég lendi í árás. Eins og var sagt við mig í fyrra skiptið, þá er þetta "good luck". Geri því bara ráð fyrir að ég verði alveg ROSALEGA heppin þennann veturinn :)