Hæ Unnur hérna enn og aftur, í dag var mikið að gera í CSM þ.e.a.s. matið ''critið'' var í allan dag þar sem við settum upp bæði verkefnin upp. Verkefnin voru me, myself og svo þetta 25 hluta design og smíði. Þetta var einskonar sýning þar sem við settum upp verkefnin og svo héldum við kynningu um okkar eigin hluti, þar sem mér gekk mjög vel, á morgun er svo viðtal við kennarann um sömu verkefni, mammamía það verður stress.
Harpa og Andri eru hér í Londres og við hittum þau í gær á Busaba, það virðist vera að við förum með alla þá sem við þekkjum á þennan stað og erum ekkert að hætta því, svo fórum við í covent og settumst á nýjan stað sem heitir Verva, hann er frekar flottur. By the way ætluðum við ekki að vera svona lengi úti í gær og tók það nokkrn tíma að koma sér afstað í morgun en allt gekk eftir á endanum. Í kvöld komu Harpa og Andri svo heim til okkar á Tower Bridge til þess að horfa á Barca vs. Arsenik, þar sem okkar lið hafði betur á móti Andra. Annars mælum við með Hörpu og Andra þau eru afar hressandi fólk.

2 Comments:
Frábært að þér hafi gengið vel á kynningunni og vonandi bara að kennarinn taki þig ekki á taugum. Þú ferð létt með þetta no worries :)
hæ snulla. Sorry að eg svaraði ekki smsinu fra þer, eg var buin með inneignina mina. Þetta reddaðist allt svo, eg var i einhverju algjöri bulli þarna i gær hehe. Hvenær ferð þu aftur heim i fri? við allavega sjaumst fljotlega xx
Post a Comment
<< Home