Friday, June 02, 2006

Ég var ekkert smá glöð í gær þegar ég uppgötvaði nýja leið til að fara í skólann. Svona til að byrja á verð ég að segja að fyrst þegar við komum hingað tók ég alltaf lestina, byrjaði á því að labba rúmar 10 mín út á lestarstöð þar sem ég þurfti að taka 2 lestir. Það ferðalag tók cirka 35 mín. Svo eftir að ég kom aftur hingað út eftir páska þá ákvað ég að breyta svolítið til og fara að taka strætó, þar sem stoppustöðin er hérna beint fyrir utan. Reyndar voru það 2 strætóar og tók yfirleitt um klukkutíma að koma mér niðureftir. Mér fannst það í lagi þar sem ég slapp við allt labbið. En svo í gær þegar ég var að fara í skólann tók ég eftir strætó númer 188 og viti menn hann stoppar hérna beint fyrir utan...... Þannig ég hoppaði upp í hann og skilaði hann mér beinustu leið heim!!!! Tók það ferðalag ekki nema rúmlegar 20 mín. Ég varð bæði mjög glöð yfir þessari samgönguleið en líka pínu pirruð að hafa ekki uppgötvað hana fyrr.

Bretar þekktir fyrir að vera með svona sérkennileg og stór nef. Í gær sá ég stærsta nef sem ég hef á ævi minni séð!!! Við erum að tala um andlit á nefi. Fyrir utan það að vera svakalega stórt þá var það líka eldrautt með hvítum dílum á. Var þetta miðaldra karlmaður á nefinu :) Varð bara að segja frá þessu þar sem ég er mikið búin að vera að hugsa um þetta fyrirbæri. Ætla rétt að vona að nefið á Kidda verði ekki svona þegar hann nálgast fimmtugt.

En helgin framundan og vonandi eitthvað smá sólskin. Góða helgi allirsaman.

3 Comments:

Blogger Unnur Ylfa said...

Sömuleiðis góða helgi og hafið það gott.

8:13 PM  
Anonymous Hildur Hlín said...

Ætli þetta hafi verið Gosi ?

7:03 PM  
Blogger Regína said...

ég held það sé ekkert sem bendi til að Kiddi verði með svona stórt nef um fimmtugt. Þá þyrftu heldur betur að eiga sér stað breytingar, hehe.
En gaman að þú sért búin að finna nýja leið í skólann, þér munar um að taka bara einn strætó og spara þar að auki 15 mínútur. Helv fínt:)

9:17 PM  

Post a Comment

<< Home