Jæja þá er maður komin heim úr fjöruferð.... Við fundum ýmislegt; skeljar, steina, bein, nagla, skrúfur og allskonar dótarí. Þetta var nú frekar skítug fjöruferð, ekki eins og við erum vön heima. Kennarinn dreifði einnota hönskum á línuna, þar sem það leynist örugglega allskonar bakteríur þarna og mjög líklega ekki langt í næstu rotttu!! Eftir að vera búin að grafa eftir gersemum fórum við svo í “picknic” fyrir utan Tate Modern og skoðuðum allt draslið. Það er samt alveg ótrúlegt hvað ég næ alltaf að brenna, sama á hvaða strönd ég fer.
Annars er það bara rólegt kvöld hjá mér, þar sem Kiddi er að fara í partý. Í partýinu verður víst Jon Bon Jovi að skemmta gestum!! Ekki leiðinlegt það, hefði sko alveg verið til í að fara með......
Annars er það bara rólegt kvöld hjá mér, þar sem Kiddi er að fara í partý. Í partýinu verður víst Jon Bon Jovi að skemmta gestum!! Ekki leiðinlegt það, hefði sko alveg verið til í að fara með......

0 Comments:
Post a Comment
<< Home