Jæja þá erum við komin aftur út. Nýja íbúðin lítur bara mjög vel út og erum við svona nokkurn veginn búin að koma okkur fyrir.
Helgin hjá okkur var alveg æðislega skemmtileg, vægast sagt. Gústi frændi og Anna kíktu til okkar í heimsókn.
Við byrjuðum á því á að fara með þau á Nando’s kjúklingastaðinn, Gústi er alveg óður í hann. Eftir það röltum við aðeins um hverfið og kíktum að sjálfsögðu inn á nokkra pöbba, svona til að svala þorstanum eftir mikið labb.
Byrjuðum svo laugardaginn á því að fara á matarmarkaðinn, þar sem þess má geta að dúfa náði að skíta á mig..... á hreinar gallabuxur!!! Ég held að allir nærstaddir hafi orðið þess varir, en nokkrar stúlkur bentu okkur á að þetta væri “good luck”. En að sjálfsögðu gat ég skemmt þeim sem með mér voru með þessu atviki. Eftir að vera komin í nýjar buxur skruppum við í covent, þar sem við náðum að kíkja aðeins í búðir. Um kvöldið fórum við svo á veitingastað sem heitir cocoon. Æðiselga flottur staður. www.cocoon-restaurants.com .
Sunnudagurinn var svo bara tekinn rólega, kíkt í búðir og borðað á wagamama um kvöldið. Á mánudaginn tókum við svo RISA stórann göngutúr. Skoðuðum chelsea og Notting Hill, reyndar fengum við vægt sjokk á leiðinni til Notting Hill. Tókum lestina og þegar við vorum komin á leiðarenda, tók þvílík mannmergð á móti okkur á stöðinni sjálfri. Fullt af löggum voru þarna sem sagði við fólkið að drífa sig út!!! Við vissum ekki hvað var í gangi og löbbuðum mjög hratt áleiðis. Svo þegar upp úr göngunum var komið tók þvílíkt mannhaf á móti okkur, við spurðum eina lögguna hvað væri eiginlega í gangi. Hann tilkynnti okkur það að þetta væri eini dagurinn á ári sem forðast ætti Notting Hill, ef skoða ætti hverfið. Það væri carnival!! Við forðum okkur þaðan hið snatrasta. Um kvöldið borðuðum við svo á busaba. Hjónin fóru svo heim í gær og er ekki hægt að neita því að það er orðið svolítið tómlegt hérna hjá okkur...... Við söknum þeirra mikið svo má bæta við að Gústi er mjög fljótur að hlaupa.

3 Comments:
Magnað að dúfan hafi náð að skíta beint á þig!
Frekar fúlt að við náðum ekki að hittast almennilega á Klakanum en við vonandi bætum það upp þegar við verðum komin til Cambridge. Björn er búinn að panta flug 6. september og ætlar að reyna að redda okkur íbúð sem fyrst. Ég verð líklega í Árósum þar til Björn er búinn að finna samastað fyrir okkur.
Kv.Regína
Gaman að fá fréttir af ykkur og þetta hefur verið hin fínasta helgi hjá ykkur
Kv.
Unnur Ylfa
takk fyrir okkur við skemmtum okkr frábærlega...Ps maður er ekkert endilega fljótur að hlaupa þó að ég nái alltaf að vinna kidda í kapphlaupi.
Post a Comment
<< Home