Thursday, September 28, 2006

Gleymdi að segja frá einu atviki í blogginu hér fyrir neðan. Þetta er alveg ótrúlegt með mig... en haldiði að það hafi ekki dúfa náð að skíta á mig á Oxfordstræti um helgina. Ég fann alltíeinu eitthvað blautt á sokknum mínum, leit niður og sá lítinn hvítann blett. Ég leit því strax upp, í von um að það væri húsþak eða eitthvað fyrir ofan. En nei nei, það var ekkert fyrir ofan mig og heiðskýr himinn.. Ég geri því ráð fyrir að þetta hafi verið dúfnaskítur. Ég held að dúfurnar hérna í London séu að leggja mig í eineilti, þar sem þetta er annað skiptið í stuttan tíma sem ég lendi í árás. Eins og var sagt við mig í fyrra skiptið, þá er þetta "good luck". Geri því bara ráð fyrir að ég verði alveg ROSALEGA heppin þennann veturinn :)

3 Comments:

Anonymous petrína said...

Ef þetta færir heppni, er þá ekki fólkið í London alveg fleygjandi sér fyrir dúfnaskítinn í von um að fá smá á sig ;)

En annars trúi ég ekki öðru en þú verðir alveg einstaklega heppin eftir þetta :)

11:54 PM  
Blogger Regína said...

Hehehe - soldið fyndið. Maður þarf að vera ansi óheppinn/heppinn til að vera akkúrat á þeim punkti þar sem dúfu dettur í hug að skíta...

Hey, ég er komin með enskt númer og nú er bara að plana hitting;) Getum farið út að borða í vikunni eða næstu og kíkt á næturlífið?

Númerið mitt er 07942 020361. Verðum í bandi.

3:08 PM  
Anonymous Hildur Hlín said...

halló halló á ekket að fara að blogga ???????

ps. þú ert alltaf svo heppin :)

8:02 AM  

Post a Comment

<< Home