Komum heim frá Mallorca í gær eftir alveg æðislegt frí. Þetta var algjör lúxus, vorum á fjögura stjörnu hóteli sem var alveg sjúklega flott. Ég hef aldrei séð jafn vel útilátið morgunverðarhlaðborð, alveg örugglega 30 metrar á lengd.. (ég er ekki að ýkja). Við byrjuðum semsagt daginn snemma og lágum svo við laugina allan daginn!! Enda erum við alveg rosalega brún, verst að engin getur séð það :) Kvöldin voru frekar róleg hjá okkur, þar sem við röltum aðeins um hverfið og fengum okkur eitthvað snarl. Okkur fannst þetta svona ekta túristastaður þar sem allt var krökt í Bretum og Þýskurum, þess má geta að einmitt fyrsti staðurinn sem við borðuðum á hét Dutchie (föttuðum það samt bara eftir á). Seinasta kvöldið okkar mátti svo sjá marga Spánverja, þar sem þeir voru að halda upp á upptöku kaþólskrar trúar. Var því mikil hátíð í gangi og allir klæddu þeir sig upp í allskyns búninga og þömmuðu meðfram ströndinni, margir með trommur.

2 Comments:
Velkomin frá Mallorca! Það var nú leitt að ná ekki að hitta á ykkur í London um helgina ... en það var sko algjört Mallorca þar!!
já segi það sama.... hefði nú alveg viljað hitta ykkur!!! Þið verðið bara að koma aftur fljótlega... hihihi
Post a Comment
<< Home