Friday, November 24, 2006

Held það sé nú alveg kominn tími í að rita nokkrar línur..... Skil ekki hvað það hefur tekið mig langann tíma. Kannski bara leti!!
Það er nú mikið búið að vera um að vera hér frá því í síðustu færslu. Búin að hitta marga sem hafa komið til Lundúna, m.a. Hrönn og Binna, Frikka og Sjönu og Sverri og Rannveigu. Við höfum því gert marg skemmtilegt síðustu vikur svo sem; Portobello, Camden, Borough Market og svo að sjálfsögðu í Covent og Oxford. Síðustu vikur hafa því verið mikið út að borða og ótrúlegt en satt var okkur báðum farið að langa í eitthvað létt. Þessi vika hefur því verið mjög einhæf hvað kvöldmat varðar, kerloggs og beyglur.
Annars hafa virku dagarnir bara sinn vanagang = vinna og skóli. Þar sem er að styttast í skólalok hjá mér er mikið að gera og er ég að klára ýmis verkefni.
Það er enþá frekar hlýtt hérna hjá okkur núna, reyndar hefur veðrið verið einsog jójó ýmist heitt eða ískalt og svo rigning þess á milli.
Aldrei að vita nema ég bloggi eitthvað eftir helgi, stefnan er að kíkja í bæinn og fara í smá jólastúss......

6 Comments:

Blogger Unnur Ylfa said...

ohh...ég væri alveg til í að koma með þér í jólastúss í London og kaupa einhverjar jólagjafir :)

10:47 PM  
Anonymous Eyrún said...

Hvenar kemurðu heim?

1:22 PM  
Blogger Unnur Ylfa said...

Hvernig var helgin hjá ykkur Sæunni?

3:00 PM  
Blogger Unnur Ylfa said...

Hvernig var helgin hjá ykkur Sæunni?

3:00 PM  
Blogger Regína said...

Oh, langt síðan ég hef fengið beyglur...

ÉG vildi ég væri komin í stemmara fyrir jólastúss - jólaskapið virðist eitthvað vera að láta bíða eftir sér.

7:42 PM  
Blogger Fatboy said...

WEEEEAAAK!...blög, blögga meira!!!

11:51 PM  

Post a Comment

<< Home